Hver gengur í buxunum hér?

Það er kominn tími á að sýna eðlilega festu í þessu máli; glæpamönnum ber að refsa, hvað sem þeir gera af sér. Ef við hefðum ekki lög til að fara eftir, hvar værum við þá stödd?

 

Og ef þið ætlið að kommenta, viljið þá vinsamlegast ekki kommenta af fáfræði eða barnaskap, ekki láta eins og þið séuð fimm ára! 


mbl.is Konur handteknar fyrir að mótmæla í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýja hetjan mín!

Ég hef ekki mikið spáð í fótbolta eða fótboltamenn í gegnum ævina, en loksins hef ég fundið mér fyrirmynd, mann sem ég get litið upp til.

Að berja mann með golfkylfu eftir karaoke er það svalasta sem ég veit um. Og það eftir að hafa sungið aggressívan slagara eins og Red Red Wine! 

En fréttin er ekki nógu góð; var þetta púttari, níujárn eða driver?


mbl.is Bellamy: Ég missti stjórn á mér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband